Býst við slæmu ferðaveðri og gulum viðvörunum

mbl.is/Kristinn Magnússon

Búast má við að fljótt verði „ansi snúið að ferðast á milli landshluta“ annað kvöld, að því er fram kemur í hugleiðingum veðurfræðings Veðurstofu Íslands. Spá gerir ráð fyrir því að snjóa fari úr skilum sem koma úr vestri annað kvöld og vindstyrkur verði nærri stormstyrk. 

Allhvass vindur eða norðaustankaldi verður á landinu í dag, éljagangur fyrir norðan og austan, en þurrt og víða bjart veður á suðvesturhorninu. Þá lægir í kvöld og nótt, en á morgun hvessir úr suðaustri og þykknar upp um landið vestanvert.

„Um kvöldið má búast við að fari að snjóa úr skilum sem koma úr vestri og vindstyrkur nærri stormstyrk og þegar þetta hvasst er og ofankoma að auki verður fljótt ansi snúið að ferðast á milli landshluta. Á láglendi fer úrkoman fljótlega yfir í slyddu og síðar rigningu en áfram snjóar á heiðum,“ segir í hugleiðingum veðurfræðings. 

„Á fimmtudagsmorgun snýst svo vindur til suðvestanáttar með skúrum eða slydduéljum, en ekki lægir sem neinu nemur. Eins geta orðið haglél við svona aðstæður og til föstudags kólnar svo úrkoman færist meira yfir til élja. Norðaustur- og Austurland sleppa ágætlega frá úrkomunni þegar vindur verður suðvestlægari. Eins má búast við að gular viðvaranir komi fram þegar líður á morguninn.“

Veðurhorfur á landinu næstu daga:

Á miðvikudag:
Vaxandi suðaustanátt og fer að snjóa á V-verðu landinu seinnipartinn, 15-23 m/s og rigning eða slydda þar seint um kvöldið og hlýnar.

Á fimmtudag:
Sunnan 13-20 m/s og talsverð rigning eða slydda í fyrstu, en úrkomulítið NA-lands. Hiti 2 til 7 stig. Snýst síðan í suðvestan 15-23 m/s með éljagangi S- og V-til og kólnar í veðri.

Á föstudag og laugardag:
Suðvestanátt og él, en bjartviðri NA-lands. Hiti kringum frostmark.

Á sunnudag:
Suðlæg átt og víða þurrt og fremur svalt, en snjókoma eða slydda á köflum S- og V-lands og hiti um frostmark.

Á mánudag:
Útlit fyrir sunnan- og suðvestanátt með rigningu S- og V-til og hiti 1 til 6 stig.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert