At­kvæðagreiðslu­kerfið komið í lag

At­kvæðagreiðslu­kerfið er bilað. Heim­ilt er að greiða at­kvæði með handa­upp­rétt­ingu …
At­kvæðagreiðslu­kerfið er bilað. Heim­ilt er að greiða at­kvæði með handa­upp­rétt­ingu og viðbúið að sú leið verði nýtt á morg­un, tak­ist ekki að laga kerfið í dag. mbl.is/​Eggert Jó­hann­es­son

Búið er að koma atkvæðagreiðslukerfi Alþingis í lag. Kerfið er notað til að greiða at­kvæði í þingsal, en bilunin komst upp fyrir helgi. Þetta segir Ragna Árnadóttir, skrif­stofu­stjóri Alþing­is, í sam­tali við mbl.is.

„Núna ætti þetta að vera komið í lag. Þetta var bilun í tækjabúnaði, en ætti að ganga eðlilega hér eftir,“ segir Ragna, en ef kerfið hefði ekki komist í lag hefði komið til greina að notast við handauppréttingar. 

Aðspurð segir hún að aukaprófanir hafi verið gerðar og því ætti kerfið að virka vel við næstu atkvæðagreiðslu. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert