Víðir greindist með Covid-19

Víðir Reynisson, yfirlögregluþjónn almannavarna.
Víðir Reynisson, yfirlögregluþjónn almannavarna. mbl.is/Kristinn Magnússon

Víðir Reynisson, yfirlögregluþjónn almannavarnasviðs ríkislögreglustjóra, hefur greinst með Covid-19. Smit kom upp í nærumhverfi hans síðdegis á mánudag og í kjölfarið fór hann í sóttkví en jafnframt fóru hann og hans nánasta samstarfsfólk auk Ölmu Möller landlæknis og Þórólfs Guðnasonar sóttvarnalæknis í sýnatöku. Sýni þeirra allra reyndust neikvæð á mánudagskvöld.

Þetta kemur fram í tilkynningu.

Víðir fór aftur í sýnatöku í dag og reyndist sýni frá honum jákvætt. Hann finnur ekki fyrir einkennum og er kominn í einangrun. Í ljósi þess að sýni frá Víði reyndist neikvætt á mánudag þykir ekki ástæða til þess að hans nánasta samstarfsfólk fari í sóttkví.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert