11 smit innanlands – aðeins 3 í sóttkví

Ljósmynd/Landspítalinn

Alls greindust 11 kórónuveirusmit innanlands í gær. Aðeins þrír voru í sóttkví við greiningu eða 27,27%.

Í einangrun eru 166 og á sjúkrahúsi eru 45 sjúklingar með Covid-19. Þar af eru tveir á gjörgæslu. Á milli daga hefur einstaklingum í einangrun fækkað um 10 þar sem þeir voru alls 176 talsins í gær. Á landamærunum bíða fjórir niðurstöðu úr mótefnamælingu.

Mjög hefur fjölgað í sóttkví, fóru úr 291 í 446 á milli daga. Í skimunarsóttkví eru 846 en voru 878 í gær.

Tæplega 700 sýni voru tekin innanlands í gær en rúmlega 200 á landamærunum.

2 börn yngri en eins árs eru í ein­angr­un, 7 börn á aldr­in­um 1-5 ára eru í ein­angr­un og 10 börn 6-12 ára. 5 börn á aldr­in­um 13-17 ára er með Covid-19 í dag. Í ald­urs­hópn­um 18-29 ára eru 30 smit, á fer­tugs­aldri eru smit­in nú 35 tals­ins en í ald­urs­hópn­um 40-49 eru 20 smit. Á sex­tugs­aldri eru 30 með Covid og á sjö­tugs­aldri eru 17 smit. 5 eru með Covid á aldr­in­um 70-79 ára, 4 á níræðisaldri og 1 einstaklingur yfir nírætt eru með veiruna að því er fram kem­ur á covid.is.

Á höfuðborg­ar­svæðinu eru 135 í ein­angr­un og 386 eru í sótt­kví. Á Suður­nesj­um eru 4 smitaðir en 14 í sótt­kví. Á Suður­landi eru 2 smit en 15 í sótt­kví. Á Austurlandi er eitt smit og og 1 í sóttkví. Á Norður­landi eystra eru 19 smit og 20 í sótt­kví. Á Norðvesturlandi er ekkert smit og enginn í sóttkví. Á Vest­fjörðum er ekkert smit og 3 í sótt­kví og á Vest­ur­landi eru 5 smit og 7 í sótt­kví. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert