Sykurskattur „ein versta skattheimtan“

Einhverjir byrja daginn á því að fá sér kókglas.
Einhverjir byrja daginn á því að fá sér kókglas. mbl.is/Hjörtur

„Það er kristaltært hvað okkur varðar að við erum alfarið á móti svona neyslustýringarsköttum. Samtökin hafa alltaf verið það,“ segir Andrés Magnús­son, fram­kvæmda­stjóri Sam­taka versl­un­ar og þjón­ustu, um mögulega aukna skattheimtu á ýmis sætindi.

Starfs­hóp­ur sem heil­brigðisráðherra skipaði til þess að móta til­lög­ur um „aðgerðaáætl­un um beit­ingu efna­hags­legra hvata til efl­ing­ar lýðheilsu“ hef­ur skilað um­fangs­mikl­um til­lög­um til ráðherra. Þar er lagt til að ráðist verði í breyt­ing­ar á skatt­kerf­inu í því augnamiði að sæt­indi af flest­um toga hækki um 20% í verði.

Þannig legg­ur hóp­ur­inn til að vöru­göld verði lögð á gos- og svala­drykki, íþrótta- og orku­drykki og vatns­drykki sem inni­halda sítr­ónu­sýru, sæl­gæti, orku- og próteinstykki, kex, kök­ur og sæta­brauð. Þá tel­ur hóp­ur­inn að skatt­leggja eigi „óholl­ar vör­ur á borð við gos­drykki“ þannig að þær falli í 24% þrep virðis­auka­skatt­s­kerf­is­ins en ekki 11% eins og nú er.

Andrés segir að sporin hræði í þessum efnum og bendir á að gjöld eins og þessi hafi verið sett á fyrir um tíu árum síðan. „Það var ein versta skattheimta sem maður hefur þurft að glíma við á öllum sínum ferli sem hagsmunagæsluaðili.“

Andrés segir að sá skattur hafi engan veginn skilað markmiðum sínum, hvorki lýðheilsu- né tekjumarkmiðum.

Andrés Magnússon framkvæmdastjóri Samtaka verslunar og þjónustu.
Andrés Magnússon framkvæmdastjóri Samtaka verslunar og þjónustu. mbli.s/Ófeigur Lýðsson

Félag atvinnurekenda gerir athugasemdir við frumvarpið og segir neyslu sykraðra gosdrykkja hafa snarminnkað undanfarin áratug. Andrés tekur undir það og segir aðrar leiðir en þær að nota skattkerfið sem neyslustýringu ákjósanlegar:

„Það er mun skynsamlegra að hvetja fólk til heilbrigðra lífshátta.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert