Björguðu veiðimanni úr sjálfheldu

Frá björguninni í dag.
Frá björguninni í dag. Ljósmynd/Slysavarnafélagið Landsbjörg

Beiðni um aðstoð björgunarsveita frá veiðimanni sem var í sjálfheldu við Skaftá nálægt Kistufelli á Suðurlandi barst um klukkan tvö í dag. Maðurinn var á veiðum ásamt öðrum manni þegar hann komst í sjálfheldu í brattlendi vegna hálku.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Slysavarnafélaginu Landsbjörg.  

„Björgunarsveitir á Suðurlandi fóru vel búnar, fundu manninn og náðu að hjálpa honum úr sjálfheldu og aðstoða veiðimennina báða niður af svæðinu.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert