Jólaþorpið opnað í dag

Jólaþorpið opnar í dag.
Jólaþorpið opnar í dag. Ljósmynd/Hafnarfjörður

Jólaþorpið á Thorsplani í Hafnarfirði var opnað í dag. Fagurlega skreyttum jólahúsum hefur verið komið fyrir, en þorpið verður opið allar helgar á aðventunni. Þetta kemur fram á vef Hafnarfjarðarbæjar. 

Í ljósi ástandsins og takmarkana verður engin skipulögð dagskrá á vegum jólaþorpsins þessa aðventuna. Hins vegar verður stemningin hlýleg og huggleg, en á sama tíma lágstemmd. Þá getur fólk nálgast spennandi gjafavöru, sælkerakrásir og handverk í Jólaþorpinu.

Þorpið vinsælt meðal ferðamanna

Jólaþorpið hefur verið á Thorsplani í Hafnarfirði frá árinu 2003 og hefur verið afar vinsælt bæði meðal Íslendinga og ferðamanna. Þótt hann verði með breyttu sniði í ár stendur gestum til boða að koma í heimsókn og vappa um bæinn. 

Jólasveinar koma í heimsókn á laugardögum og Grýla verður á vappi um bæinn á sunnudögum til að athuga hvort allir séu ekki að virða fjarlægðarmörkin, nota andlitsgrímu og duglegir að spritta og þvo hendur. Opið verður 13 til 18 um helgar alla aðventuna.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert