Ljósin tendruð að viðstöddu fámenni

Frá tendrun ljósanna í gærkvöldi.
Frá tendrun ljósanna í gærkvöldi. Ljósmynd/Akureyrarbær

Í gærkvöldi voru ljós á jólatrénu á Ráðhústorgi á Akureyri tendruð. Venja hefur verið að efna til samkomu á torginu, en sökum faraldurs kom slíkt ekki til greina í ár. Þetta kemur fram á vef Akureyrarbæjar. 

Tréð kemur frá vinabæ Akureyrar, Randers í Danmörku. Fulltrúi frá danska sendiráðinu í Reykjavík, Adam Grønholm, kom ásamt konsúl Dana á Akureyri, Helga Jóhannessyni, til að afhenda tréð með formlegum hætti og veitti Ásthildur Sturludóttir bæjarstjóri því viðtöku.

Adam aðstoðaði í kjölfarið dansk-íslensku systkinin Dagmar Elvíru, fjögurra ára, og Erik Valdemar, sex ára, við að styðja á hnappinn og kveikja ljósin á trénu. Barnakór Akureyrarkirkju undir stjórn Sigrúnar Mögnu Þórsteinsdóttur söng jólalög þegar tréð færðist í ljósaskrúða.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert