Víðir tjáir sig um veikindin: Fimm aðrir smitaðir

Víðir Reynisson yfirlögregluþjónn smitaðist af kórónuveirunni.
Víðir Reynisson yfirlögregluþjónn smitaðist af kórónuveirunni. mbl.is/Kristinn Magnússon

Fimm manns úr nærumhverfi Víðis Reynissonar yfirlögregluþjóns hjá almannavörnum hafa nú greinst með staðfesta Covid-19-sýkingu. Víðir og eiginkona hans greindust smituð á dögunum og er Víðir nú á fjórða degi veikinda. Hann tjáði sig um veikindin á Facebook í dag.

„Einkennin voru í fyrstu væg en í gær vorum við hjónin verulega slöpp. Dagurinn í dag er skárri,“ skrifar Víðir. 

Í facebookfærslunni deilir Víðir sögunni af ferlinu. Þar segir hann að frá því að þegar faraldurinn kom til landsins hafi hann og kona hans þrengt verulega þann hóp sem þau hafi umgengist.

„Það gerðum við til þess að lágmarka áhættu á því að bera smit á milli. Þó gerðist það að við smituðumst og þegar það var staðfest var ljóst að fólk í okkar nánasta umhverfi var útsett fyrir veirunni,“ skrifar Víðir.

„Mánudaginn 23. nóvember fór konan mín að finna fyrir einkennum og fór að sjálfsögðu heim úr vinnu og pantaði tíma í sýnatöku. Það gekk hratt fyrir sig og síðdegis lá fyrir niðurstaða um staðfest Covid-19-smit. Smitrakning fór þá strax í gang og var ákveðið að þar sem hún hefði lítil einkenni, en lága CT-tölu sem þýddi að hún væri talsvert smitandi, að fara 48 tíma til baka varðandi þá sem þyrftu að fara í sóttkví okkar vegna. Einnig var ákveðið að skima talsvert marga aðra í okkar umhverfi.“

Uppruni smitsins hjá eiginkonu Víðis er óþekktur. Smitrakning hefur ekki skilað árangri.

„Hún vinnur á skrifstofu og eina sem hún fór dagana fyrir einkennin var í vinnuna og í verslanir. Vinnufélagar hennar hafa allir farið í skimun og reynst neikvæðir,“ skrifar Víðir. 

Pössuðu ekki upp á snertifleti

Helgina áður en hjónin greindust smituð höfðu þau að mestu dvalið heima við. Þó var eitthvað um gestagang.  

„Laugardaginn 21. nóvember kom vinafólk okkar utan af landi til að búa tímabundið hjá okkur vegna læknisþjónustu sem þau þurftu að sækja til Reykjavíkur. Dætur þeirra kíktu stutt í kaffi á sunnudeginum. Vinkona okkar kom stutt við í kaffi líka. Börn okkar, tengdadóttir og barnabarn komu einnig við og um kvöldið komu til okkar vinahjón sem stoppuðu stutt. Í öllum tilfellum var passað upp á fjarlægðir á milli okkar og gesta og reyndum að forðast sameiginlega snertifleti,“ skrifar Víðir. 

Þegar smitrakningu lauk í tilfelli eiginkonu Víðis þótti ljóst að 12 voru útsettir að honum meðtöldum. Þessir tólf fóru þá í sóttkví.

„Í dag er staðan þannig að auk okkar hjóna hafa fimm aðrir úr hópnum greinst með staðfesta Covid-19-sýkingu. Vinafólk okkar sem býr hjá okkur var augljóslega mikið útsett.
Smit annarra sýnir svo ekki sé um villst hversu smitandi þessi veira er. Við erum búin að fara vel yfir öll samskiptin og höfum fundið að fjarlægð sem var haldin var um eða yfir tvo metra við alla. Hins vegar er ljóst að við pössuðum ekki upp á alla sameiginlega snertifleti. Vatnskanna, kaffibollar og glös hafa sennilega verið sameiginlegir snertifletir sem hafa dugað til að smita.

Sjálfur hef ég verið manna duglegastur við að hvetja alla til að passa eigin sóttvarnir og því þungbært að þetta sé staðan. Við getum ekki annað en vonað að við öll, eins og allir þeir fjölmörgu sem eru að berjast við þennan óvætt, komum heil út úr þessu,“ skrifar Víðir. 

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert