Beint: Kynningarfundur um ný frumvörp í barnamálum

Ásmundur Einar Daðason, félags- og barnamálaráðherra.
Ásmundur Einar Daðason, félags- og barnamálaráðherra. mbl.is/Árni Sæberg

Ásmundur Einar Daðason, félags- og barnamálaráðherra, kynnir á fundi í dag ný frumvörp í barnamálum sem miða að því að gjörbylta aðstæðum barna og fjölskyldna þeirra, en frumvörpin eru á leið inn í þingið. Fundurinn hefst klukkan 13:00.

Í tilkynningu frá ráðuneytinu segir að verkefnið sé risavaxið og feli sennilega í sér mestu breytingu sem gerð hefur verið á umhverfi barna á Íslandi í áratugi.

Auk ráðherra mun Najat Maalla M‘jid, sérlegur sendifulltrúi aðalritara Sameinuðu þjóðanna um ofbeldi gegn börnum, halda ávarp og Björn Brynjúlfur Björnsson hagfræðingur fjallar um hagrænan ávinning af innleiðingu frumvarps um samþættingu þjónustu í þágu farsældar barna.

Hægt er að fylgjast með fundinum hér að neðan.



mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert