Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir hefur skilað Svandísi Svavarsdóttur heilbrigðisráðherra minnisblaði sínu með endurskoðuðum tillögum að næstu sóttvarnaaðgerðum.
Þetta staðfestir Kjartan Hreinn Njálsson, aðstoðarmaður landlæknis, við mbl.is.
Núverandi reglugerð rennur út á miðvikudaginn.
„Það yrði mjög erfitt að setja strangari fjöldatakmarkanir. Þetta er ansi strangt nú þegar. Það er ekki mikið rúm til að fara í eitthvað þrengra,“ sagði Þórólfur við mbl.is í gær. Bætti hann við að fara verði hægt í allar tilslakanir.