Stormur og ofankoma í kvöld

Kort/Veðurstofa Íslands

Hæglætisveður er á landinu í dag, dálítil él norðan til framan af degi en annars víða bjart. Eftir hádegi kemur lítið lægðardrag upp að suðausturströndinni með snjókomu á Suðausturlandi og á Austfjörðum.

„Vaxandi suðaustanátt síðdegis, 15-20 m/s og snjókoma suðvestan til í kvöld en síðar slydda og rigning eftir því sem hlýnar í kvöld og nótt. Skilin ganga yfir landið í kvöld og nótt með hvassviðri og snjókomu í flestum landshlutum og gular við varanir eru í gildi á öllu landinu að Norðurlandi eystra og Austurlandi að Glettingi undanskildum.

Í fyrramálið snýst síðan í allhvassa suðvestanátt með skúrum og hægt kólnandi veðri. Um miðja vikuna snýst í norðanátt með snjókomu norðan til og kólnandi veðri um allt land,“ segir í hugleiðingum veðurfræðings á Veðurstofu Íslands.

Veðurhorfur hæstu daga

Hæg breytileg átt en norðvestan 5-13 m/s á Austfjörðum fram að hádegi. Lítils háttar él norðan til, annars bjart með köflum, en snjókoma suðaustan til síðdegis. Frost 0 til 4 stig. Vaxandi suðaustanátt, þykknar upp og hlýnar seint í dag, 10-20 í kvöld og snjókoma en síðar slydda, hvassast með suðurströndinni. Fer að rigna í nótt, fyrst suðvestan til. Snýst í suðvestan 13-20 með skúrum, en léttir til norðaustanlands. Hiti 2 til 7 stig, en kólnar annað kvöld.

Á þriðjudag (fullveldisdaginn):

Allhvöss eða hvöss sunnan- og síðar suðvestanátt með rigningu og hita 1 til 8 stig, mildast með suðurströndinni. Kólnar smám saman síðdegis með skúrum eða éljum, en léttir til norðaustanlands.

Á miðvikudag:
Allhvöss eða hvöss norðanátt og snjókoma norðan til, en heldur hægari vindur og víða él syðra. Frost 0 til 8 stig.

Á fimmtudag:
Útlit fyrir allhvassa norðnátt og snjókomu, en úrkomulítið sunnan heiða. Frost 4 til 12 stig, kaldast inn til landsins.

Á föstudag:
Minnkandi norðanátt og snjókoma norðan til, en bjartviðri sunnanlands. Hiti breytist lítið.

Á laugardag:
Hæg suðlæg eða breytileg átt, víða bjartviðri og talsvert frost.

Á sunnudag:
Útlit fyrir suðaustanátt með slyddu eða rigningu, en bjart með köflum norðaustanlands. Hlýnandi veður.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert