Fyrsti alvöru norðanáttarkaflinn

Kort/Veðurstofa Íslands

Gular viðvaranir eru í gildi á hluta landsins í dag og taka þær flestar gildi um og eftir hádegi. Eftir daginn í dag skiptir veðrið um gír og útlit er fyrir að fyrsti alvöru norðanáttarkafli vetrarins sé væntanlegur á næstu dögum.

Í dag er útlit fyrir hvassa suðvestanátt, jafnvel storm á stöku stað. Yfirleitt hægari vindur norðvestan til á landinu. Búast má við skúrum eða slydduéljum en það styttir upp og rofar til norðaustan- og austanlands. Hiti á bilinu 2 til 7 stig.

Eftir daginn í dag skiptir veðrið um gír og útlit er fyrir að fyrsti alvöru norðanáttarkafli vetrarins sé væntanlegur á næstu dögum.

Á morgun er sem sagt útlit fyrir vaxandi norðanátt á landinu, víða hvassviðri eða stormur eftir hádegi. Á sunnanverðu landinu er gert ráð fyrir lítilli úrkomu, einungis dálitlum éljum á víð og dreif. Þó ber að nefna að þar sem laus snjór er á jörðu, mun hann fara af stað og mynda skafrenning. Á norðurhelmingi landsins má búast við snjókomu og gæti hún orðið í nægilegu magni til að tala megi um stórhríð með köflum á Norður- og Norðausturlandi.

Síðan gera spár ráð fyrir að norðanáttin haldi sama styrk á fimmtudag, en það herðir á frostinu þegar hrollkalt loft berst yfir okkur beint norðan úr Íshafinu. Ekki er gert ráð fyrir að norðanvindurinn gangi niður að gagni fyrr en eftir hádegi á föstudag og þá fer að stytta upp og létta til.

Eins og oft vill verða þegar lægir og léttir til eftir kalda norðanátt, þá nær frostið sér á strik og horfur eru á hægum vindi um helgina með hörkufrosti,“ segir í hugleiðingum veðurfræðings á Veðurstofu Íslands.

Viðvaranir í dag

Á Suðurlandi er gul viðvörun í gildi í dag frá klukkan 12 til 22. „Suðvestanhvassviðri eða stormur 15-23 m/s með skúrum eða slydduéljum á láglendi, en éljum á fjallvegum. Akstursskilyrði geta verið erfið. Há sjávarstaða, ölduhæð og áhlaðandi í suðvestanáttinni getur skapað mikinn ágang við ströndina og í höfnum.“

Við Faxaflóa er gul viðvörun í gildi í dag frá klukkan 12 til 22. „Suðvestanhvassviðri eða stormur 15-23 m/s með skúrum eða slydduéljum á láglendi, en éljum á fjallvegum. Akstursskilyrði geta verið erfið. Há sjávarstaða, ölduhæð og áhlaðandi í suðvestanáttinni getur skapað mikinn ágang við ströndina og í höfnum.“

Á Norðurlandi eystra tekur gul viðvörun gildi klukkan 14 og er í gildi til 2 aðfaranótt miðvikudags. „Suðvestan stormur 18-23 m/s og hviður jafnvel yfir 35 m/s. Varhugavert ferðaveður og fólk er hvatt til að sýna aðgát og tryggja lausamuni.“

Austurland að Glettingi, gul viðvörun frá klukkan 16 til 3 í nótt. „Suðvestanstormur 18-23 m/s og hviður jafnvel yfir 35 m/s. Varhugavert ferðaveður og fólk er hvatt til að sýna aðgát og tryggja lausamuni.“

Á miðhálendinu rennur úr gildi gul viðvörun klukkan 8 en ný tekur gildi klukkan 12 á hádegi  og gildir til 2 í nótt, aðfaranótt miðvikudags. „Suðvestanstormur eða -rok, 20-28 m/s og hviður allt að 40 m/s við fjöll. Skafrenningur og ekkert ferðaveður.“

Á morgun verða einnig viðvaranir í gildi og verður fjallað um þær í frétt á mbl.is í fyrramálið. 

Veðurspáin fyrir næstu daga

Gengur í suðvestan 15-23 m/s í dag, en yfirleitt hægari vindur norðvestan til á landinu. Skúrir eða slydduél, en rofar til norðaustan- og austanlands. Hiti 2 til 7 stig.

Kólnar heldur í kvöld með éljum og snýst þá í norðanátt á Vestfjörðum með snjókomu þar.

Vaxandi norðanátt á morgun, víða 15-23 m/s eftir hádegi. Lítils háttar él á sunnanverðu landinu. Snjókoma á norðurhelmingi landsins, sums staðar talsverð ofankoma á Norðurlandi. Kólnandi veður, frost 1 til 6 stig þegar líður á daginn.

Á miðvikudag:
Vaxandi norðanátt, víða 15-23 m/s síðdegis. Lítils háttar él á sunnanverðu landinu. Snjókoma á norðurhelmingi landsins, sums staðar talsverð ofankoma á Norðurlandi. Kólnandi veður, frost 2 til 7 stig þegar líður á daginn.

Á fimmtudag:
Norðan 15-23 með snjókomu eða éljum, en úrkomulítið sunnan til á landinu. Frost 3 til 9 stig.

Á föstudag:
Norðan 13-20 með éljagangi á Norður- og Austurlandi, en bjartviðri sunnan- og vestanlands. Lægir og styttir upp síðdegis, fyrst vestast á landinu. Herðir á frosti.

Á laugardag:
Hæg breytileg átt og víða bjartviðri. Frost 5 til 18 stig.

Á sunnudag og mánudag:
Hæg breytileg átt og léttskýjað, en stöku él á sunnanverðu landinu. Kalt í veðri. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert