Góði hirðirinn að fyllast

Verslun Góða hirðisins í Fellsmúla. Nýlega opnaði önnur búð Góða …
Verslun Góða hirðisins í Fellsmúla. Nýlega opnaði önnur búð Góða hirðisins en vegna samkomutakmarka næst ekki að selja hluti jafnóðum. mbl.is/Kristinn Magnússon

Verslanir Góða hirðisins ná ekki að selja huti jafn hratt og þeir berast. Þetta kemur fram í facebook-færslu í dag. 

Sorpa hefur opnað fyrir nytjagáma að nýju, þó bara þrjá; í Ánanaustum, Sævarhöfða og Breiðhellu. Ekki verður hægt að koma með nytjahluti í aðrar stöðvar að svo stöddu. 

Þá er fólk beðið um að bíða með að losa sig við hluti í lengstu lög. Ástæða þess er að Góði hirðirinn getur ekki selt nytjahluti jafnóðum vegna samkomutakmarkana í verslunum.


mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert