Lögreglan á Norðurlandi eystra segir að það hafi verið sérstakur dagur í gær þegar lögreglan kvaddi gamlan og traustan Ford Econoline, sem kallaður var „María“ eins og þekkt er með þessa lögreglubíla, sem hefur verið í notkun á Akureyri síðan í júní 1997.
Þetta kemur fram í Facebook-færslu lögreglunnar.
Þar segir jafnframt að margir hafi byrjað sín fyrstu skref í lögreglunni sem þriðji maður í aftursætinu í bifreiðinni.
„Bifreiðin hefur verið áberandi í kringum næturlífið á Akureyri um helgar og ófáir í misjöfnu ástandi sem hafa fengið „skutl“ í þessari bifreið. Lögreglumönnum á Akureyri þykir mörgum vænt um 119 og því er það ánægjulegt að Samgönguminjasafnið á Ystafelli ætlar að varðveita bifreiðina fyrir Lögregluminjasafnið. Það var umferðardeild lögreglunnar á Norðurlandi eystra sem afhenti bifreiðina Samgönguminjasafninu,“ segir í færslunni.
Það var sérstakur dagur í gær þegar að við kvöddum maríuna okkar, 119. Ford Econoline sem að er búinn að vera í notkun á...
Posted by Lögreglan á Norðurlandi eystra on Þriðjudagur, 1. desember 2020