Eldur í rafmagnstöflu

Eldur kom upp í þvottahúsinu Grand við Freyjunes 4 á …
Eldur kom upp í þvottahúsinu Grand við Freyjunes 4 á Akureyri í morgun. mbl.is/Þorgeir Baldursson

Eldur kom upp í tæknirými þvottahússins Grand á Akureyri um 8 í morgun. Greiðlega gekk að slökkva eldinn og er slökkvistarfi lokið segir Gunnar Rúnar Ólafsson varaslökkviliðsstjóri. 

Hann segir að eldurinn hafi komið upp í rafmagnstöflu og mikill reykur verið í tæknirými þvottahússins. Nýlega var rýmið gert upp í samstarfi við slökkviliðið og það því vel einangrað og eldvarnaveggur milli þess og annarrar starfsemi að sögn Gunnars.

Þetta kom í veg fyrir að reykurinn bærist í önnur rými þvottahússins og tjón því minna en annars hefði orðið.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert