Lögreglan lýsir eftir Arnari Sveinssyni

Arnar Sveinsson.
Arnar Sveinsson. Ljósmynd/Aðsend

Lögreglan á Austurlandi lýsir eftir Arnari Sveinssyni, 32 ára, en ekkert hefur spurst til hans síðan í september.

Arnar er um 185 sentimetrar á hæð, grannvaxinn, rauðhærður og var með sítt hár, rautt skegg og gleraugu, að því er segir í tilkynningu frá lögreglunni.

Vitað er að hann fór til Berlínar í Þýskalandi í ágúst síðastliðnum.

Ef einhver getur gefið upplýsingar um ferðir Arnars síðan í september er viðkomandi beðinn um að hafa samband við rannsóknardeild lögreglunnar á Austurlandi í síma 444-0650 eða netfangið: rannsoknaustur@logreglan.is.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert