Mesta kuldakast í sjö ár

Kort/Veðurstofa Íslands

Næstu daga stefnir í eitt mesta kuldakast á suðvesturhorni landsins síðan árið 2013 og hafa Veitur virkjað viðbragðsáætlun í rekstri hitaveitunnar. Sú áætlun gengur meðal annars út á að hvetja fólk til þess að fara sparlega með heita vatnið svo allir hafi nægt vatn til húshitunar.

Það herðir á frostinu þegar ískalt heimskautaloft streymir yfir okkur úr norðri á morgun. Spáð er allt að 18 stiga frosti á landinu um helgina.  

Sé tekið mið af spálíkönum, sem nýta veðurspár til að áætla notkun, er útlit fyrir að hitaveitan á höfuðborgarsvæðinu fari að þolmörkum á föstudag og fram yfir helgi. Um 90% af hitaveituvatni er notað til húshitunar og því skiptir afar miklu máli að fólk sé meðvitað um hvernig nýta á það sem best, segir í tilkynningu frá Veitum.

Fólk er hvatt til að gera eftirfarandi:

  • Hafa glugga lokaða.
  • Hafa útidyr ekki opnar lengur en þörf krefur.
  • Láta ekki renna í heita potta.
  • Stilla ofna svo þeir séu heitir að ofan en kaldir að neðan
  • Varast að byrgja ofna, t.d. með síðum gluggatjöldum eða húsgögnum
  • Minnka þrýsting á snjóbræðslukerfum

„Mikilvægt er að hafa í huga að þeir köldu dagar sem við höfum upplifað undanfarið hafa verið í hæglátu veðri. Nú er hins vegar útlit fyrir töluverðan vind sem veldur mikilli kælingu ofan á það frost sem er í kortunum,“ segir í tilkynningu frá Veitum.

Kerfi hitaveitunnar er stórt og umfangsmikið og er í sífelldri uppbyggingu sem miðuð er að spám um fólksfjölgun og byggingamagn. Það sem ekki var fyrirséð í langtímaspám var sú aukning sem verið hefur í notkun á hvern íbúa sl. ár.

Til samanburðar hefur söguleg aukning i hitaveitunni verið 1,5% - 4% milli ára en heildarnotkunin í ár er 11% meiri en á síðasta ári.

Mikið hefur verið framkvæmt í hitaveitunni undanfarin ár til að mæta aukinni eftirspurn, m.a. hefur varmastöð í Hellisheiðarvirkjun, sem framleiðir heitt vatn fyrir höfuðborgarsvæðið, verið stækkuð, dælugeta kerfisins aukin og borholur á lághitasvæðum verið hvíldar yfir sumartímann til að auka aðgengilegan forða yfir vetrartímann.

„Til að bregðast við kuldakastinu sem nú er í kortunum eru Veitur að hækka hitastig vatnsins sem notendur fá frá virkjunum og borholum á lághitasvæðum í Reykjavík og Mosfellsbæ, kerfið hefur verið fínstillt svo það anni sem allra mestu og unnið er að lagfæringum á nýjum dælum er keyptar voru í haust og auka áttu dælugetu kerfisins. Kallaðir hafa verið til erlendir sérfræðingar til verksins. Heita vatnið er sameiginleg auðlind okkar allra og með samstilltu átaki viðskiptavina má minnka notkun þannig að hitaveitan standist álagið sem kuldakastið veldur,“ segir enn fremur. 

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert