Lögreglu barst síðdegis í gær ábending um mann í annarlegu ástandi, grímulausan og almennt til vandræða í matvöruverslun á höfuðborgarsvæðinu. Maðurinn neitaði að fylgja reglum starfsmanna og því var kallað eftir aðstoð lögreglu. Þegar lögregla kom á vettvang var maðurinn farinn úr versluninni.
Fimm ökumenn voru stöðvaðir fyrir akstur undir áhrifum fíkniefna síðdegis í gær og í nótt. Einhverjir þeirra voru einnig undir áhrifum áfengis og aðrir ekki með ökuréttindi þrátt fyrir að hafa verið stöðvaðir undir stýri ökutækja.