Ný aðstaða fyrir Alzheimer- og Parkinsonsamtökin

St. Jó hefur fengið nýtt hlutverk í að skapa Hafnarfirði …
St. Jó hefur fengið nýtt hlutverk í að skapa Hafnarfirði sérstöðu sem heilsueflandi samfélag. Ljósmynd/Olga Björt Þórðardóttir

Á haustfundi styrktar- og líknarsjóðs Oddfellowreglunnar á Íslandi var samþykkt að styrkja bæði Alzheimer- og Parkinsonsamtökin um uppbyggingu á þjónustumiðstöð og dagdvalarrými á 3. hæð í Lífsgæðasetri St. Jó í Hafnarfirði.

Í Lífsgæðasetri má í dag finna skapandi samfélag einstaklinga, félagasamtaka og fyrirtækja sem eiga það sameiginlegt að auka lífsgæði viðskiptavina sinna með áherslu á heilsu, samfélag og nýsköpun, að því er kemur fram í tilkynningu.

Lífsgæðasetur St. Jó er sjálfbær eining rekin af Hafnarfjarðarbæ og hefur húsnæðið að Suðurgötu 41, sem áður hýsti St. Jósefsspítala, verið í eigu sveitarfélagsins frá 2017. Síðan þá hefur mikill metnaður verið lagður í að byggja upp opið samfélag og eftirsóknarverðan vettvang fyrir hverskyns heilsueflingu, segir í tilkynningunni.  

„Það hefur lengi verið draumur Alzheimersamtakanna að koma á fót þjónustumiðstöð fyrir þá sem greinst hafa með heilabilun og með styrk Oddfellow-reglunnar verður sá draumur að veruleika. Tilkoma miðstöðvarinnar verður bylting í þjónustu við einstaklinga með heilabilun og aðstandendur þeirra“ segir Vilborg Gunnarsdóttir framkvæmdastjóri Alzheimersamtakanna í tilkynningunni.

Tímamót hjá Parkinsonsamtökunum

„Það eru stór tímamót í sögu Parkinsonsamtakanna að geta innan skamms tíma boðið betri aðstöðu fyrir ráðgjöf, stuðning, þjálfun og dagdvöl með sérhæfðri endurhæfingu fyrir fólk með parkinson. Stuðningurinn frá Oddfellow er ómetanlegur og breytir allri starfsemi samtakanna“ bætir Vilborg Jónsdóttir, formaður Parkinsonsamtakanna, við.

„Það eru forréttindi að fá að taka þátt í uppbyggingu sem þessari. Við höfum kynnt okkur starfsemi Alzheimer- og Parkinsonsamtakanna undanfarið ár og okkur finnst gríðarlega mikilvægt að hægt sé að reka þessa mikilvægu þjónustu fyrir veika einstaklinga og aðstandendur þeirra og að samtökin tvö fái að sanna sig til frambúðar í þessu glæsilega húsi sem Hafnarfjarðarbær hefur glætt nýju lífi. Fyrir okkur Oddfellowa er verkefnið afar gefandi og við erum virkilega stolt af því að tilheyra félagsskap sem getur komið að verkefnum með jafn öflugum hætti núna, ekkert síður en með fyrri verkum s.s. uppbyggingu líknardeildarinnar í Kópavogi, við uppbyggingu Samhjálpar í Hlaðgerðarkoti og með stækkun Ljóssins, endurhæfingarmiðstöðvar við Langholtsveginn“ segir Steindór Gunnlaugson formaður Styrkar- og líknarsjóðs Oddfellow.

Jákvætt og mikilvægt skref

„Sú ánægjulega niðurstaða að bæði Alzheimer- og Parkinsonsamtökin munu þróa starfsemi sína á Lífsgæðasetrinu á næstu árum er ótrúlega jákvætt og mikilvægt skref bæði fyrir Lífsgæðasetur St. Jó en ekki síður fyrir Hafnarfjörð sem heilsueflandi samfélag. Með þessu skrefi er Lífsgæðasetrið komið með öflugar kjölfestur í daglega starfsemi sína sem er frábær viðbót við þá fjölbreyttu þjónustu sem þegar er til staðar í húsinu“ segir Rósa Guðbjartsdóttir bæjarstjóri Hafnarfjarðar, í tilkynningunni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert