Boeing-vél Icelandair bútuð niður hér á landi

Þotan Surtsey tekin í sundur.
Þotan Surtsey tekin í sundur. mbl.is/Árni Sæberg

Flugvirkjar Icelandair vinna nú að niðurrifi Boeing 757-vélar félagsins, Surtseyjar, sem er ein fjögurra slíkra véla sem teknar hafa verið úr rekstri.

Verkið fer fram í flugskýli Icelandair á Keflavíkurflugvelli en tvær vélar verða bútaðar niður hér á landi.

Ýmis búnaður er notaður áfram í varahluti en stærstur hluti skrokksins fer í endurvinnslu. Hefur svona stórt verk ekki áður verið unnið hér á landi,  að því er fram kemur í umfjöllun um mál þetta í Morgunblaðinu í dag.

Nánar má lesa um þetta mál hér.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert