Alls greindust 14 með kórónuveirusmit innanlands í gær. Einn var ekki í sóttkví en 13 í sóttkví, það er tæplega 93%. Í einangrun eru 205 og hefur fjölgað um 1 á milli daga. Af þeim 205 sem eru í einangrun eru 176 búsettir á höfuðborgarsvæðinu. 19 börn yngri en 18 ára eru með Covid-19 í dag á öllu landinu.
Við landamærin greindist einn við seinni skimun en þrír voru með mótefni. Á sjúkrahúsi eru nú 38 sjúklingar með Covid-19 og af þeim eru tveir á gjörgæslu.
Heldur hefur fjölgað í sóttkví en þeir eru 670 talsins en voru 637 í gær. Í skimunarsóttkví er 971. Rúmlega 1.300 sýni voru tekin innanlands í gær en 343 á landamærunum.
2 börn yngri en eins árs eru í einangrun, 3 börn á aldrinum 1-5 ára eru í einangrun og 8 börn 6-12 ára. 6 börn á aldrinum 13-17 ára er með Covid-19 í dag. Í aldurshópnum 18-29 ára eru 35 smit, á fertugsaldri eru smitin nú 38 talsins en í aldurshópnum 40-49 eru 28 smit. Á sextugsaldri eru 47 með Covid og á sjötugsaldri er 21 smit. 13 eru með Covid á aldrinum 70-79 ára, 3 á níræðisaldri og 1 einstaklingur yfir nírætt eru með veiruna að því er fram kemur á covid.is.
Á höfuðborgarsvæðinu eru 176 í einangrun og 469 er í sóttkví. Á Suðurnesjum eru 12 smitaðir en 142 í sóttkví. Á Suðurlandi eru 7 smit en 10 í sóttkví. Á Austurlandi er enginn með Covid-19 smit og enginn í sóttkví. Á Norðurlandi eystra eru 5 smit og 3 í sóttkví. Á Norðvesturlandi er ekkert smit og 2 í sóttkví. Á Vestfjörðum er 1 smit og 20 í sóttkví og á Vesturlandi eru 2 smit og 17 í sóttkví. Óstaðsettir í hús eru 2 í einangrun og 7 í sóttkví.