Endurlífgunartilraunir báru ekki árangur

mbl.is

Maðurinn sem féll ofan í vök á Suðurlandi fyrr í kvöld er látinn. Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglunni á Suðurlandi. Endurlífgunartilraunir báru ekki árangur og var hann úrskurðaður látinn við komu á Heilbrigðisstofnun Suðurlands.

Ekki er vitað um dánarorsök að svo stöddu en lögreglan  er með málið til rannsóknar.

Lögregla, sjúkraflutningar og björgunarsveitir í Árnessýslu voru kallaðar til á sjöunda tímanum í kvöld. Tilkynnt var um mann er hafði setið fastur í vatni úti í mýri og hafði hann kallað eftir aðstoð. Mikið hafði dregið af honum þegar komið var að honum og missti hann meðvitund fljótt eftir að fyrsti maður kom að honum, að því er segir í tilkynningunni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert