Fjórðungur smitaðra einkennalaus

Niðurstöðurnar benda því til þess að allt að 24% einstaklinga …
Niðurstöðurnar benda því til þess að allt að 24% einstaklinga sem greindust með Covid-19 hefðu ekki greinst með sjúkdóminn eða greiningu hefði seinkað ef einungis þeir sem uppfylltu ofangreind skilmerki hefðu fengið að fara í sýnatöku. Ljósmynd/Landspítali

Ný rannsókn vísindahóps við Landspítala og Háskóla Íslands á tíðni og þróun einkenna meðal Covid-19-sjúklinga í fyrstu bylgju sjúkdómsins hér á landi bendir til að nærri fjórðungur hefði ekki greinst með sjúkdóminn, eða greiningu hefði seinkað, ef einungis þeir sem uppfylltu einkennaskilmerki sjúkdómsins hefðu fengið að fara í sýnatöku.

Greint er frá niðurstöðum hópsins í vísindatímaritinu British Medical Journal sem kom út í gær. Rannsóknin sýnir enn fremur að nærri helmingur sjúklinganna fann fyrir einkennum í meltingarfærum.

Byggði á gögnum frá göngudeildinni

Fyrsti höfundur greinarinnar er nýdoktorinn og læknirinn Elías Eyþórsson en rannsóknina vann hann undir handleiðslu Runólfs Pálssonar og Martins Inga Sigurðssonar, prófessora við Læknadeild, og í samstarfi við stóran hóp vísindamanna, lækna og læknanema við Landspítala og Háskóla Íslands.

Rannsókn Elíasar og félaga byggði á gögnum sem var safnað á Covid-göngudeild Landspítala. Allir sem greindust með Covid-19 voru skráðir í símaþjónustu deildarinnar sem fól í sér tíð símtöl hjúkrunarfræðinga og lækna þar sem lagt var mat á líðan fólks og ráðgjöf veitt. Jafnframt var í hverju símtali spurt hvort einhver af 19 skilgreindum einkennum væru til staðar og mat lagt á alvarleika veikindanna.

Uppfærð eftir hvert símtal

Svör við þessum spurningum voru skráð kerfisbundið á sérstakt eyðublað sem var hannað fyrir þjónustu göngudeildarinnar og var skráningin uppfærð eftir hvert símtal. Rannsóknin náði til allra 1797 einstaklinga sem greindust með COVID-19 frá 28. febrúar til 30. apríl 2020 og var 1564 sem greindust eftir að skráningarblaðið var tekið í notkun gefinn sérstakur gaumur.

Algengustu einkenni Covid-19 voru slappleiki (75%), höfuðverkur (73%) og hósti (73%). Einungis 48% fengu hita og 58% voru með bragðskynstruflun og 57% lyktarskynstruflun. Öll einkenni voru algengust í upphafi veikinda fyrir utan bragð- og lyktarskynstruflun sem var örlítið algengari á áttunda degi eftir að einkenni komu fram.

48% með einkenni frá meltingarfærum

Þótt oft sé talað um Covid-19 sem öndunarfærasjúkdóm er athyglisvert að 48% höfðu einkenni frá meltingarfærum. Rannsóknin sýndi einnig að 22% greindra einstaklinga uppfylltu ekki einkennaskilmerki Alþjóðaheilbrigðisstofnunarinnar (WHO) fyrir greiningarpróf og 14% uppfylltu ekki skilmerki Sóttvarnarmiðstöðar Bandaríkjanna (CDC).

Niðurstöðurnar benda því til þess að allt að 24% einstaklinga sem greindust með Covid-19 hefðu ekki greinst með sjúkdóminn eða greiningu hefði seinkað ef einungis þeir sem uppfylltu ofangreind skilmerki hefðu fengið að fara í sýnatöku.

Nánar má lesa um rannsóknina hér.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert