Reyna að bólusetja landsmenn í byrjun árs

„Gera má ráð fyrir að ferlið hefjist fljótlega eftir áramót …
„Gera má ráð fyrir að ferlið hefjist fljótlega eftir áramót og að markmiðum bólusetningar verði vonandi náð á fyrsta ársfjórðungi ársins 2021.“ AFP

Samningur Íslands við lyfjafyrirtækið Pfizer vegna kaupa á bóluefni við Covid-19 verður undirritaður í næstu viku. Samningurinn hljóðar upp á bóluefni fyrir 85.000 einstaklinga. Ráðuneytið gerir ráð fyrir því að bólusetning hefjist hérlendis í byrjun næsta árs og markmiðum bólusetningarinnar um að bólusetja 75% landsmanna verði náð á fyrsta ársfjórðungi ársins 2021.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá heilbrigðisráðuneytinu. 

Vonir standa til að Pfizer fái skilyrt markaðsleyfi frá Lyfjastofnun Evrópu 29. desember þegar fjallað verður um það hvort stofnunin geti mælt með því að lyfið verði tekið í notkun.

Þegar hefur Ísland  samið við lyfjafyrirtækið AstraZeneca um kaup á bóluefni sem dugir fyrir 115.000 einstaklinga.

Takmarkað magn til að byrja með

Bóluefni AztraZeneca er ekki komið með markaðsleyfi í Evrópu en gert ráð fyrir að Lyfjastofnun Evrópu ljúki umfjöllun sinni um það í janúar og þann 12. janúar verður fjallað um markaðsleyfi fyrir bóluefni Moderna.

„Íslandi og öðrum EFTA ríkjum er tryggður sami aðgangur að bóluefnum og ríkjum Evrópusambandsins. Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins hefur þegar gert samninga við sex lyfjaframleiðendur, þar með talda AstraZeneca, Pfizer og Moderna. Framkvæmdastjórnin semur um heildarmagn frá hverjum framleiðanda og skiptist það hlutfallslega milli þjóðanna. Hver þjóð gerir jafnframt beinan samning við þá framleiðendur sem hún hyggst kaupa af bóluefni og EFTA-þjóðirnar í gegnum Svíþjóð. Ísland hefur þegar gert samning varðandi AstraZeneca og er að ljúka varðandi Pfizer. Þá liggja fyrir drög að samningi við Moderna og Janssen (Johnson & Johnson),“ segir í tilkynningunni.

Fljótlega eftir að markaðsleyfi fæst fyrir bóluefni frá fyrirtækjum sem Ísland er með beinan samning við má gera ráð fyrir því að fyrstu skammtar verði fluttir til landsins.

„Það er þó fyrirséð að bóluefni sem fá markaðsleyfi verði deilt milli ríkja og komi því í takmörkuðu magni til að byrja með, þ.e. að ekki komi allt það magn sem samið hefur verið um í einu lagi,“ segir í tilkynningunni.

Bólusetja með 2-3 vikna millibili

Flestir samningar gera ráð fyrir því að bóluefnin verði flutt til landsins af framleiðanda.

„Miðað er við að nota sömu dreifingaraðila og þegar dreifa lyfjum hér á landi fyrir þessi erlendu fyrirtæki. Drög liggja fyrir að samningi við dreifingaraðila fyrir þau fyrirtæki sem eru líklega fá fyrst markaðsleyfi. Sprautum og nálum verður dreift með bóluefnunum. Vinnuhópur á vegum sóttvarnarlæknis sér um að skipuleggja bólusetninguna en framkvæmdin er unnin í samvinnu við heilbrigðisstofnanir.“

Eins og áður hefur komið fram þarf að bólusetja fólk tvisvar með bóluefnunum. Ráðuneytið gerir ráð fyrir að bólusett verði með tveggja til þriggja vikna millibili. Eftir það líður allt að mánuður þar til viðkomandi einstaklingur er kominn með mótefnasvar. Það getur þó að einhverju leyti verið misjafnt eftir því hvaða bóluefni á í hlut.

„Markmið bólusetningar er að vernda fólk fyrir sjúkdómnum og að ná upp hjarðónæmi sem hindrar útbreiðslu faraldursins. Til að ná hjarðónæmi er gert ráð fyrir að bólusetja þurfi a.m.k. helming þjóðarinnar. Hér er gert ráð fyrir að um 75% landsmanna verði bólusettir. Gera má ráð fyrir að ferlið hefjist fljótlega eftir áramót og að markmiðum bólusetningar verði vonandi náð á fyrsta ársfjórðungi ársins 2021,“ segir í tilkynningunni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert