12 innanlandssmit – allir í sóttkví

Mjög mörg sýni hafa verið tekin innanlands síðustu daga en …
Mjög mörg sýni hafa verið tekin innanlands síðustu daga en sýnataka fer meðal annars fram á Suðurlandsbraut. mbl.is/Kristinn Magnússon

Alls greindust 12 smit innanlands í gær og voru allir þeir sem greindust í sóttkví. Alls eru 212 í einangrun. Hefur þeim fjölgað um sjö á milli daga. Á sjúkrahúsi eru 38 vegna Covid-19 og af þeim eru tveir á gjörgæslu. Alls eru 679 í sóttkví og 904 eru í skimunarsóttkví. 

Alls voru tekin tæplega 900 sýni innanlands í gær og 339 á landamærunum. Á landamærunum greindist eitt virkt smit við fyrri skimun og eitt við seinni skimun. Þrír bíða niðurstöðu mótefnamælingar.

Mikil fjölgun í sóttkví á Vesturlandi og þrjú ný smit 

Tvö börn yngri en eins árs eru í ein­angr­un, fjögur börn á aldr­in­um 1-5 ára eru í ein­angr­un og átta börn 6-12 ára. Átta börn á aldr­in­um 13-17 ára eru með Covid-19 í dag. Í ald­urs­hópn­um 18-29 ára eru 37 smit, á fer­tugs­aldri eru smit­in nú 39 tals­ins en í ald­urs­hópn­um 40-49 er 31 smit. Á sex­tugs­aldri eru 48 með Covid og á sjö­tugs­aldri eru 18 smit. 13 eru með Covid á aldr­in­um 70-79 ára, þrír á níræðisaldri og einn einstaklingur yfir nírætt eru með veiruna að því er fram kem­ur á covid.is.

Á höfuðborg­ar­svæðinu eru 179 í ein­angr­un og 413 eru í sótt­kví. Á Suður­nesj­um eru 13 smitaðir en 137 í sótt­kví. Á Suður­landi eru sjö smit en 10 í sótt­kví. Á Austurlandi er enginn með Covid-19-smit og enginn í sóttkví. Á Norður­landi eystra eru fjögur smit og þrír í sótt­kví. Á Norðvesturlandi er ekkert smit og þrír í sóttkví. Á Vest­fjörðum er eitt smit og 20 í sótt­kví og á Vest­ur­landi eru fimm smit og 88 í sótt­kví. Óstaðsett­ir í hús eru þrír í einangrun og fimm í sóttkví.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert