Fimm handteknir í stóru fíkniefnamáli

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefur nú til rannsóknar umfangsmikið mál sem snýr að framleiðslu fíkniefna og sölu þess, en talið er að um skipulagða brotastarfsemi sé að ræða. Í gær voru fimm handteknir í þágu málsins og nokkrir til viðbótar hafa réttarstöðu sakbornings, en þrír hinna handteknu hafa verið úrskurðaðir í gæsluvarðhald til 15. desember á grundvelli rannsóknarhagsmuna.

Frá þessu greinir lögreglan í tilkynningu.

Þar segir, ennfremur að vegna rannsóknarinnar hafi veirð framkvæmdar á annan tug húsleita á höfuðborgarsvæðinu, en lagt var hald á ætluð fíkniefni, fjármuni og ýmsan búnað sem tengist starfseminni.

Liður í baráttunni gegn skipulagðri brotastarfsemi

„Við rannsóknina og aðgerðirnar, sem er liður í baráttunni gegn skipulagðri brotastarfsemi, hefur Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu notið liðsinnis lögreglunnar á Suðurnesjum og embætta ríkislögreglustjóra og héraðssaksóknara, auk aðstoðar pólskra lögregluyfirvalda og Europol,“ segir lögreglan, sem bætir við að frekari upplýsingar um málið verði ekki veittar að svo stöddu.

Hún minnir einnig á upplýsingasíma lögreglu 800 5005. Í hann má hringja nafnlaust til að koma á framfæri upplýsingum um skipulagða brotastarfsemi, eða önnur brot sem fólk hefur vitneskju um. Ábendingum um brot má jafnframt koma á framfæri í einkaskilaboðum á fésbókarsíðu Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert