Greinir á um „umdeild“ vitni í máli Jóns Baldvins

Gunnar Ingi Jóhannsson lögmaður Aldísar Schram í Héraðsdómi Reykjavíkur í …
Gunnar Ingi Jóhannsson lögmaður Aldísar Schram í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag. mbl.is/Kristinn Magnússon

Varnir í meiðyrðamálum snúa að því að ummæli rúmist innan marka tjáningarfrelsis og þeim sem er stefnt í slíkum málum þurfa að sanna að ummælin séu sönn eða hafi verið sögð í góðri trú. Þetta kom fram í máli Gunnars Inga Jóhannssonar, lögmanns Aldísar Schram, í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag þar sem tekist var á um vitni sem hún vill kalla til í meiðyrðamáli föður hennar, Jóns Baldvins Hannibalssonar, gegn henni og Sigmari Guðmundssyni.

Um er að ræða fjórar konur sem Aldís vill kalla til en þær segjast hafa verið áreittar af hendi Jóns Baldvins eða heyrt um meint brot hans.

Sum­arið 2019 stefndi Jón Bald­vin dótt­ur sinni Al­dísi Schram vegna um­mæla henn­ar í Morg­unút­varp­inu 17. janú­ar sama ár. Jón Bald­vin ger­ir ekki fjár­kröf­ur á hend­ur Al­dísi held­ur krefst þess að um­mæl­in, níu úr Morg­unút­varp­inu og ein af Face­book, verði dæmd dauð og ómerk.

Sig­mari er stefnt fyr­ir fern um­mæli úr þætt­in­um 17. janú­ar, en hann sagði í sam­tali við mbl.is á síðasta ári að um­mæl­in væru end­ur­sögn á um­mæl­um Al­dís­ar í viðtal­inu og um­mæli sem hún hafði birt op­in­ber­lega á Face­book og aðrir miðlar höfðu vitnað til.

Gunnar Ingi benti einnig á gildisdóma en þá hafi sá sem stefnt er dregið ályktanir af upplýsingum sem hann eða hún hafði. Þá þurfi að leiða fram vitni til að sjá á hverju ummælin eru byggð.

„Það er að bera í bakkafullan lækinn að fjalla um þau tugi kynferðisbrota sem stefnandi er sakaður um,“ sagði Gunnar Ingi og benti á að á þriðja tug kvenna opnuðu vefsíðu í febrúar 2019 þar sem þær lýpsa kynferðisbrotum og áreiti af hendi Jóns Baldvins.

Lögmaðurinn sagði að upphafspunktur meiðyrðamálsins væri í janúar í fyrra þegar þrjár konur stigu fram undir nafni og lýstu slíkri háttsemi af hendi hans. Tvær þessara kvenna vill Aldís leiða fram sem vitni í málinu.

Hann sagði mikilvægt að varpa frekara ljósi á máli í heild sinni. Þó þetta meiðyrðamál megi rekja til janúarmánaðar í fyrra hafi allt málið tengt Jóni Baldvini hafist áratugum fyrr.

Vilhjálmur Hans Vilhjálmsson lögmaður Jóns Baldvins Hannibalssonar.
Vilhjálmur Hans Vilhjálmsson lögmaður Jóns Baldvins Hannibalssonar. mbl.is/Kristinn Magnússon

Vilhjálmur Vilhjálmsson, lögmaður Jóns Baldvins, vill ekki að konurnar fjórar komi fyrir dóm og beri vitni í málinu.

Hann sagði þær ekki geta vitnað um með einum eða öðrum hætti um atvik þessa máls; sem snúi eingöngu að ummælum Aldísar í útvarpinu.

Hann hafnar því enn fremur að málið snúist um áðurnefnda vefsíðu gegn Jóni Baldvini eða MeToo-byltinguna.

Lögmaðurinn sagði eitt vitnanna, sem tekist er á um hvort komi fyrir dóm, vísa í „almannaróm“ máli sínu til stuðnings. Vilhjálmur sagði almannaróm ekkert annað en slúður og það gangi ekki að bera vitni um „meintan almannaróm“.

Dómari úrskurðar fyrir jól hvort konurnar verði kölluð til sem vitni en aðalmeðferð í málinu hefst 13. janúar.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert