Ný nálgun við rannsóknir á verkjum

Páll Ragnar Karlsson hlaut viðurkenningu Dönsku sykursýkisakademíunnar sem rannsóknamaður ársins …
Páll Ragnar Karlsson hlaut viðurkenningu Dönsku sykursýkisakademíunnar sem rannsóknamaður ársins 2020.

Páll Ragnar Karlsson, Ph.D. í læknavísindum, var í gær útnefndur „rannsóknarmaður ársins“ hjá Dönsku sykursýkiakademíunni (Danish Diabetes Academy – DDA).

Hún veitir árlega tvenn verðlaun þeim sem hafa náð góðum árangri á sviði sykursýkirannsókna og hafa notið stuðnings DDA til rannsóknanna. Viðurkenningunni fylgdu verðlaun, 25.000 danskar krónur, eða um 500 þúsund krónur.

Páll var heiðraður fyrir rannsóknir sínar á verkjum sykursjúkra. Hann varð fyrstur í Danmörku til að beita nýrri aðferð við töku og greiningu húðsýna sem geta sagt til um ástand tauga í húðinni. Í umfjöllun um mál þetta í Morgunblaðinu í dag segir að aðferðin geti valdið tímamótum.

Í fréttatilkynningu DDA sagði að sérfræðiþekking Páls skipi honum í fremstu röð vísindamanna sem stunda rannsóknir á þessu sviði í heiminum. DDA bendir á að ekki séu nema sjö ár síðan Páll varði Ph.D.-ritgerð sína og hann sé því á fyrsta áratug sínum sem vísindamaður við rannsóknir.Hann hefur starfað við Dönsku verkjarannsóknamiðstöðina í Árósum frá 2010 og þar gegnir aðferðin sem Páll þróaði veigamiklu hlutverki að sögn DDA.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert