Segir malartorg við Bessastaði vera sorglegt

Álftanes. Hringtorgið fyrir framan afleggjarann til Bessastaða er farið að …
Álftanes. Hringtorgið fyrir framan afleggjarann til Bessastaða er farið að valda nágrönnum ama og áhyggjum, ogábendingu komið til bæjaryfirvalda í Garðabæ um að gera það snyrtilegra, m.a. með því að setja þar upp listaverk. Kristinn Magnússon

Bæjaryfirvöld í Garðabæ hafa tekið vel í ábendingu frá íbúa í Garðabæ varðandi frágang á hringtorgi á móts við Bessastaði. Bæjarráð fól bæjarstjóra að taka upp viðræður við Vegagerðina vegna málsins.

Í ábendingunni kemur fram að hringtorgið fyrir framan forsetabústaðinn sé malarhringtorg og lágkúrulegt að mati bréfritara. „Er ekki mögulegt að veita því smá andlitslyftingu? Leyfa ungum hönnuðum eða listamönnum að spreyta sig í hönnunarkeppni um áhugaverða útkomu á þessu hringtorgi?

Margt spennandi kemur til greina, eitthvað tengt sjónum og sjómennsku en lengi vel var sjómennska ein aðalatvinnugrein Álftnesinga. Eða stytta af hesti eða hestum, en margir íbúar Álftaness eru miklir hestamenn. Eitthvað tengt Bessastöðum, t.d stytta af Sveinbirni Egilssyni, rektor Bessastaðaskóla,“ segir m.a. í bréfinu.

„En fyrst og fremst þarf að gera bragarbót á þessu malartorgi. Það er eiginlega bara sorglegt.“

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert