Kennarar hrærðir og klökkir

Pakkarnir biðu starfsfólks FG í morgun.
Pakkarnir biðu starfsfólks FG í morgun. Ljósmynd/FG

„Kæru nemendur takk fyrir hvatninguna, hlýjar hugsanir og falleg orð í okkar garð. Við erum orðlaus, hrærð og klökk,“ segir á facebooksíðu Fjölbrautaskólans Garðabæ.

Þar má sjá mynd af pökkum sem var raðað á borð en bögglarnir eru ætlaðir starfsfólki FG.

Eins og ítrekað hefur komið fram hafa miklar takmarkanir verið á skólastarfi framhaldsskóla í haust vegna þriðju bylgju kórónuveirufaraldursins.

Samkvæmt reglum mega 25 koma saman í hverju sótthólfi í skólunum og er grímuskylda þar sem ekki er unnt að tryggja tveggja metra reglu milli fólks. Töluvert af námi hefur því verið í fjarnámi í haust.

„Þið hafið sýnt ótrúlega þrautseigju, dugnað og aldrei tapað gleðinni! Við erum í þessu saman,“ segir í færslunni á facebooksíðu FG.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert