Tryggðu flugsamgöngur til Bretlands

Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra undirritar loftferðasamninginn.
Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra undirritar loftferðasamninginn. Ljósmynd/Utanríkisráðuneytið

Guðlaugur Þór Þórðarson, utanríkis- og þróunarsamvinnuráðherra, undirritaði í dag fyrir Íslands hönd loftferðasamning milli Íslands og Bretlands, en með honum eru flugsamgöngur á milli ríkjanna tryggðar eftir að aðlögunartímabili Breta vegna útgöngunnar úr ESB lýkur um áramótin.

Þetta er fyrsti langtímasamningurinn sem Ísland gerir við Bretland vegna útgöngunnar úr ESB en umfangsmiklar viðræður um framtíðarsamband ríkjanna á fjölmörgum sviðum standa nú yfir. 

Robert Courts, ráðherra flug- og siglingamála og almannaöryggis í bresku ríkisstjórninni, hafi undirritað samninginn fyrir hönd Bretlands. Í tilkynningu á vef Stjórnarráðsins segir að samningurinn sé gerður vegna útgöngu Bretlands úr ESB, en við lok aðlögunartímabilsins 31. desember 2020 munu flugsamgöngur á milli Íslands og Bretlands ekki lengur byggja á EES-samningnum.

Með undirritun loftferðasamningsins haldast hins vegar áfram sömu tvíhliða flugréttindi og bæði löndin hafa í dag með aðild þeirra að Sameiginlega evrópska flugsvæðinu (e. European Common Aviation Area). 

Bretar og Evrópusambandið hafa ekki undirritað loftferðasamning, en stefnt er að hann verði hluti af fríverslunarsamningnum, sem stefnt er að því að klára fyrir áramótin. Náist það ekki liggur engu að síður fyrir reglugerð hjá sambandinu sem tryggir óbreytt ástand næsta hálfa árið. 

Loftbrúin helst áfram opin og greið

„Fluggeirinn skiptir íslenskt efnahagslíf höfuðmáli og í því sambandi gegna flugsamgöngur við Bretland lykilhlutverki, bæði hvað varðar vöruflutninga og ferðalög fólks. Undirritunin í dag markar því tímamót því þar með helst loftbrúin á milli ríkjanna áfram opin og greið,“ segir Guðlaugur Þór Þórðarson, utanríkis- og þróunarsamvinnuráðherra í tilkynningunni.

„Það hefur verið okkur kappsmál að tryggja að flugsamgöngur við þennan mikilvægasta útflutningsmarkað okkar í Evrópu geti haldið áfram án nokkurra hnökra þrátt fyrir útgönguna. Þótt mikill samdráttur hafi orðið í flugsamgöngum vegna heimsfaraldursins eiga þær eftir að komast í eðlilegt horf þegar farsóttin gengur niður,“ segir Guðlaugur Þór.

Viðræður Breta og EFTA-ríkjanna ganga vel

Fríverslunarviðræður Íslands og hinna EFTA-ríkjanna innan EES, Noregs og Liechtenstein, við Bretland standa nú yfir. Þrátt fyrir kórónuveirufaraldurinn hafa viðræður gengið vel og eru langt komnar. Í síðustu viku undirrituðu bresk og íslensk stjórnvöld bráðabirgðafríverslunarsamning sem tryggir óbreytt tollkjör vegna vöruviðskipta við Bretland. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert