Ísland orðið fyrir hvað mestum samdrætti

Komufarþegar í flugstöð Leifs Eiríkssonar.
Komufarþegar í flugstöð Leifs Eiríkssonar. mbl.is/Árni Sæberg

Ísland er í hópi þeirra landa í Evrópu sem hafa orðið fyrir hvað mestum samdrætti í komum ferðamanna á árinu. Þetta kemur fram í greiningu Evrópska ferðamálaráðsins (ETC).

Malta, Portúgal og Serbía eru með álíka fækkun ferðamanna. Þau lönd sem hafa orðið hvað verst úti eru Kýpur, Svartfjallaland, Rúmenía og Tyrkland með um eða yfir 77% fækkun, að því er segir í tilkynningu frá atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu.

Þá hefur samdráttur í ferðaþjónustu einnig mikil áhrif á afkomu og störf í fjölmörgum öðrum atvinnugreinum s.s. landbúnaði, verslun, samgöngum og byggingariðnaði. Nýjustu tölur sýna að 467.000 erlendir farþegar fóru frá Íslandi um Keflavíkurflugvöll á tímabilinu janúar–október 2020 samanborið við 1,7 milljónir farþega árið 2019, sem jafngildir 73% samdrætti milli ára. 

Jákvæðni hefur aukist

Ísland hefur fengið töluverða athygli í erlendum fjölmiðlum fyrir viðbrögð við heimsfaraldrinum og samkvæmt nýlegri greiningu á vegum Íslandsstofu má greina aukna jákvæðni og ferðavilja á mörkuðum eftir að fréttir af bóluefni komu. Auk þess má merkja aukningu í leitarfyrirspurnum um Ísland sem áfangastað.

Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, ráðherra ferðamála, iðnaðar og nýsköpunar.
Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, ráðherra ferðamála, iðnaðar og nýsköpunar. mbl.is/Eggert Jóhannesson

„Íslensk ferðaþjónusta stendur á styrkum stoðum. Við höfum sett tugi milljarða í innviðauppbyggingu undanfarin ár. Við eigum skýran stefnuramma fyrir greinina til ársins 2030 sem unnin var í samráði við greinina og sveitarstjórnarstigið. Sú stefna stendur óhögguð þegar Covid-tímabilinu lýkur. Við byggjum á þeim grunni og sækjum fram um leið og færi gefst,“ segir Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra, í tilkynningunni.

„Búast má við því að ferðamenn muni sækja í örugga áfangastaði þar sem góðir innviðir eru til staðar og nægt pláss til athafna. Ísland, sem strjálbýlasta land Evrópu með stórbrotna náttúru og víðerni, verður eftirsóknarverður áfangastaður þegar fólk fer að ferðast á ný eftir COVID-19 faraldurinn,“ bætir hún við.

Þjóðhagsspá Hagstofu Íslands, Seðlabanki Íslands og Samtök ferðaþjónustunnar gera ráð fyrir því að ferðamenn verði á bilinu 750 – 950 þúsund árið 2021. Búast má við að viðsnúningur hefjist fyrir alvöru á þriðja ársfjórðungi, en að breytingar verði greinilegar frá og með apríl 2021

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert