Þeir sem fara til Seyðisfjarðar gæti að sér

Frá Seyðisfirði.
Frá Seyðisfirði. mbl.is/Pétur Kristjánsson

Vegna aurskriðanna á Seyðisfirði beinir aðgerðastjórn tilmælum til þeirra sem þurfa að fara þangað starfs sín vegna eða af öðrum nauðsynlegum ástæðum, um að gæta að sér í hvívetna, huga að grímunotkun, tveggja metra fjarlægð, handþvotti og sprittnotkun.

Þetta kemur fram í tilkynningu.

Hvatt er til þess að viðkomandi gefi sig fram við vettvangsstjórn í húsakynnum björgunarsveitarinnar Ísólfs að Hafnargötu 17 og fái leiðbeiningar og mögulega fylgd um svæðið ef koma þeirra og vera tengist aurskriðunum sem féllu á þriðjudag.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert