Katrín í lögreglufylgd eftir hótun

Katrínu var fylgt í varðskipið Tý.
Katrínu var fylgt í varðskipið Tý. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra var skyndilega tekin afsíðis af sérsveitarmanni ásamt aðstoðarmanni sínum í skoðunarferð um Ferjuhúsið á Seyðisfirði nú fyrir stuttu. 

Blaðamenn fengu engar skýringar á uppákomunni. Samkvæmt heimildum mbl.is er ástæða uppákomunnar hótun sem beindist að Katrínu frá íbúa á svæðinu. Frekari upplýsingar liggja þó ekki fyrir.

Andrúmsloftið var rafmagnað meðal blaðamanna á svæðinu. Um tíu mínútum síðar steig forsætisráðherra fram á ný og ræðir nú við blaðamann en hún vill ekki tjá sig um það sem fram fór.

Uppfært 12:46

Katrín er að tala við gesti fjöldahjálparmiðstöðvarinnar eins og ekkert hafi í skorist. Viðbragðaðilar eru þó á svæðinu, þar á meðal sérsveitarmaður sem reyndar hefur verið með í för alla ferðina.

Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra og Lísa Kristjánsdóttir aðstoðarmaður hennar í fylgd …
Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra og Lísa Kristjánsdóttir aðstoðarmaður hennar í fylgd sérsveitar. mbl.is/Eggert Jóhannesson
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert