Ólöglegt efni í Wasa-hrökkbrauði

Tvær tegundir af hrökkbrauðinu sænska hafa verið innkallaðar.
Tvær tegundir af hrökkbrauðinu sænska hafa verið innkallaðar. Ljósmynd/SS

SS hefur í samstarfi við heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur innkallað tvær tegundir af Wasa-hrökkbrauði. Hrökkbrauðið inniheldur varnarefnið etýlenoxíð sem ekki er leyfilegt í matvælaframleiðslu.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Matvælastofnun, sem fékk upplýsingar um vöruna í gegnum evrópska viðvörunarkerfið um matvæli og fóður (RASFF).

Innköllunin á aðeins við um tvær vörutegundir og framleiðslulotur, sem sjá má hér að neðan. Þeir sem hafa keypt þær eru beðnir að neyta þeirra ekki heldur farga eða skila til SS á Fosshálsi 1 í Reykjavík.

Tegundirnar eru:

  • Vörumerki: Wasa
  • Vöruheiti: Sesam & Havssalt
  • Geymsluþol: Best fyrir dagsetning: 31.8. 2021
  • Lotunúmer: S01086800
  • Strikamerki: 7300400111119
  • Nettómagn: 290 g
  • Geymsluskilyrði: Á ekki við
  • Framleiðandi: Barilla/Wasa
  • Framleiðsluland: Svíþjóð
  • Dreifing: Fjarðarkaup, Aðföng (Hagkaup), Verslun Einars Ólafssonar, Melabúðin, Hlíðarkaup, Ikea, jólagjafasala til fyrirtækja
  • Vörumerki: Wasa
  • Vöruheiti: Sesam Gourmet
  • Geymsluþol: Best fyrir dagsetning: 31.1. 2021, 30.4. 2021, 30.6. 2021
  • Lotunúmer: G01044710, G01045630, G01046190
  • Strikamerki: 7300400481502
  • Nettómagn: 220 g
  • Geymsluskilyrði: Á ekki við
  • Framleiðandi: Barilla/Wasa
  • Framleiðsluland: Svíþjóð
  • Dreifing: Hlíðarkaup, Fjarðarkaup, Melabúðin, gjöf til mæðrastyrksnefndar, jólagjafasala til fyrirtækja
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert