Moderna veitt íslenskt markaðsleyfi

Moderna er annað bóluefnið á Íslandi til að fá markaðsleyfi.
Moderna er annað bóluefnið á Íslandi til að fá markaðsleyfi. AFP

Lyfjastofnun hefur veitt bóluefni Moderna, „COVID-19 Vaccine Moderna“, skilyrt íslenskt markaðsleyfi. Um er að ræða annað bóluefnið gegn Covid-19 sem fær markaðsleyfi hér á landi. 

Bóluefnið ver einstaklinga gegn Covid-19 og er ætlað til notkunar hjá einstaklingum 18 ára og eldri. Byggir markaðsleyfið á markaðsleyfi framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins, en leyfisveiting hennar byggir á meðmælum Lyfjastofnunar Evrópu. Bæði meðmælin og markaðsleyfi framkvæmdastjórnarinnar birtust fyrr í dag.

Um er að ræða annað bóluefnið gegn COVID-19 sem hlýtur markaðsleyfi hérlendis, en hið fyrra var bóluefnið Comirnaty frá BioNTech/Pfizer. Yfirlestur á íslenskum þýðingum fylgiseðils og samantektar á eiginleikum lyfs stendur yfir hjá Lyfjastofnun og verða íslenskir textar birtir um leið og þeir eru endanlegir. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert