Sviptingin úrskurðuð ólögmæt

Lárus Sigurður Lárusson og Sævar Þór Jónsson.
Lárus Sigurður Lárusson og Sævar Þór Jónsson. mbl.is/Stella Andrea

Landsréttur hefur snúið úrskurði héraðsdóms við í máli Lárusar Sigurðar Lárussonar. Hann hafði áður verið talinn hafa brotið starfs- og trúnaðarskyldu sem skiptastjóri fasteignafélagsins Þórodds ehf. Var honum í kjölfarið vikið úr starfi skiptastjóra þrotabúsins. 

Ástæða brott­vikn­ing­ar­inn­ar var fram­ferði hans í tengsl­um við sölu á verðmæt­ustu eign bús­ins, fast­eign­inni Þórodds­stöðum sem stend­ur við Skóg­ar­hlíð 22 í Reykja­vík. Var Lárus sagður hafa selt eignina á undirverði í gegnum fasteignasölu eiginmanns og samstarfsmanns hans, Sævars Þórs Jónssonar. 

Hafi tryggt eiginmanninum þóknun

Þannig var Lárus sagður hafa tryggt að þóknun vegna sölu fasteignarinnar rynni til eiginmanns hans. Sölu­laun eig­in­manns­ins námu 2,5 pró­sent­um af kaup­verðinu sem eru hærri sölu­laun en geng­ur og ger­ist og hálfu pró­senti hærri en miðað er við í verðskrá fast­eigna­sölu eig­in­manns­ins.

Fyrir Landsrétti var lögð fram verðskrá fasteignasölunnar sem og samningur um söluþjónustuna og kemur fram í úrskurðinum að um hafi verið að ræða almenna sölu, en ekki einkasölu og hafi því 2,5 prósent verið samkvæmt verðskrá.

Í úrskurði Landsréttar kemur fram að ekki hafi þetta verið nægilegt efni til að víkja honum fyrirvaralaust úr starfi skiptastjóra. Því hafi úrskurður héraðsdóms verið felldur úr gildi, en varnaraðilum var gert að greiða Lárusi 496 þúsund krónur í kærumálskostnað. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert