Útgáfa vottorða er í vinnslu

Vottorð vegna bólusetningar gegn kórónuveirunni eru í undirbúningi.
Vottorð vegna bólusetningar gegn kórónuveirunni eru í undirbúningi. AFP

Útgáfa bólusetningarvottorða vegna Covid-19 er í vinnslu en ekki komin til framkvæmda, samkvæmt upplýsingum frá embætti landlæknis.

Útgáfa vottorðanna verður líklega afgreidd með svipuðum hætti og útgáfa mótefnavottorða sem fólk getur sótt á vef Heilsuveru (heilsuvera.is). Skipulag í kringum vottorðin fer fram í samstarfi við aðrar Evrópuþjóðir.

Á landamærum Íslands hefur verið hægt að framvísa vottorði um staðfesta Covid-19-sýkingu á Íslandi frá 10. desember 2020 og eins hafa verið tekin gild sambærileg vottorð frá löndum innan EES/EFTA-svæðisins. Vottorðið má vera á pappír eða á rafrænu formi, samkvæmt frétt á vef embættis landlæknis. Landamæraverðir meta hvort vottorðið er gilt og kalla til heilbrigðisstarfsmann ef þarf. Lokaákvörðun um gildi vottorðs er á ábyrgð sóttvarnalæknis.

Ef farþegi framvísar vottorði sem er ógilt skal hann sæta þeim sóttvarnaráðstöfunum sem öðrum komufarþegum er gert að sæta.

gudni@mbl.is

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert