Borgin vill ekki aðstoða

Ráðhús Reykjavíkur.
Ráðhús Reykjavíkur. mbl.is/Ómar Óskarsson

Reykjavíkurborg lýsir sig andsnúna hugmyndum um frestun fasteignagjalda til að koma til móts við fyrirtæki í kórónuveirufaraldrinum.

Þetta kemur fram í umsögn fjármála- og áhættustýringarsviðs borgarinnar um drög að frumvarpi sem á m.a. að auðvelda sveitarfélögum að styðja fyrirtæki í faraldrinum. Áherslan er þar ekki síst á fasteignagjöld en þau eru ferðaþjónustunni þungur baggi í faraldrinum.

Samband íslenskra sveitarfélaga (SÍS) lýsir yfir stuðningi við drögin en sú umsögn er samin í samráði við Lánasjóð sveitarfélaga.

Umsögn Reykjavíkurborgar er á allt öðrum nótum og eru þar gerðir lagalegir og fjárhagslegir fyrirvarar við breytingu á fasteignagjöldum, að því er fram kemur í umfjöllun um mál þetta í  Morgunblaðinu í dag.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert