Jón Þór gefur ekki kost á sér áfram

Opnað var fyrir skráningar í prófkjör Pírata í morgun og …
Opnað var fyrir skráningar í prófkjör Pírata í morgun og sendi Jón Þór frá sér pistil samhliða opnuninni. mbl.is/Kristinn Magnússon

Jón Þór Ólafsson, þingmaður Pírata, gefur ekki kost á sér í næstu alþingiskosningum. Þetta kemur fram í tilkynningu frá þingflokki Pírata.

Opnað var fyrir skráningar í prófkjör Pírata í morgun og sendi Jón Þór frá sér pistil samhliða opnuninni.

„Markmið mitt var alltaf tryggja sjálfbærni Pírata, og í dag er hreyfingin sterkari en nokkru sinni fyrr. Það er mikill meðbyr með flokknum, grasrótin er öflug, starfsfólkið okkar er afburðahæft, þingflokkurinn hefur aldrei verið samheldnari og þau sem bjóða sig fram aftur kunna til verka. Píratar eru því svo sannarlega sjálfbærir og þar sem ég er ekki lengur nauðsynlegur í framlínuna mun ég aftur leita í friðinn utan þingsins í stað þess að leita endurkjörs,“ skrifar Jón Þór.

Meðfram þingstörfunum og að þeim loknum hyggst Jón Þór verja tíma sínum í stuðning við næstu kynslóð frambjóðenda og þingmanna.

„Eins og nýleg rannsókn Stefaníu Óskarsdóttur og Ómars H. Kristmundssonar sýnir eru þingmenn yfirleitt lengi að læra á starfið, sem er einfaldlega sóun. Sóun á tíma, peningum og starfskröftum. Og umfram allt sóun á tækifærum til að vinna að framgöngu stefnumála Pírata.“

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert