Um 40% af plasti endurunnin

Tíu þúsund tonn af plasti hafa verið send úr landi …
Tíu þúsund tonn af plasti hafa verið send úr landi frá árinu 2014. Frá síðustu áramótum hafa um 40 prósent plasts verið endurunnin, en um tíma var allt sorp brennt. Ljósmynd/Friðrik Tryggvason

Sorpa hefur sent tíu þúsund tonn af plasti utan til endurvinnslu frá árinu 2014. Þetta kemur fram í svari framkvæmdastjóra Sorpu við fyrirspurn borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins. Einungis um 40 prósent af því plasti sem sent hefur verið til Svíþjóðar hefur verið metið hæft til endurvinnslu.

Svarbréf var tekið fyrir á fundi borgarráðs í vikunni, en fyrst var greint frá því á vef Ríkisútvarpsins

Tilefni fyrirspurnarinnar er umfjöllun Stundarinnar um endurvinnslu plasts frá Íslandi, sem birt var í október undir titilinum Plastleyndarmál Íslands þar sem því er haldið fram að endurvinnsla á íslensku plasti sé mun minni en opinberar tölur gefi til kynna. Stór hluti þess sé brenndur hjá umdeildu sænsku fyrirtæki, Stena.

Í bréfi framkvæmdastjóra Sorpu segir að Sorpu hafi haustið 2018 borist upplýsingar um að allt plast þyrfti tímabundið að fara til „orkuvinnslu“, þ.e. brennslu, eftir að Kínverjar lokuðu fyrir móttöku á plasti. Frétt um það var þá birt á heimasíðu Sorpu. Um mitt ár 2019 hófust sendingar á plasti til flokkunar að nýju. Allt sorp fer í gegnum flokkun þar sem metið er hvort það sé hægt til endurvinnslu, en samkvæmt tölum frá fyrirtækinu Stena og Úrvinnslusjóði er það um 40%.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert