Enginn sjúklingur á hjartadeild smitaður

Landspítalinn við Hringbraut.
Landspítalinn við Hringbraut. mbl.is/Ómar Óskarsson

Rannsókn á sýnum vegna Covid-19-skimunar 32 sjúklinga á hjartadeild 14 EG lauk laust fyrir klukkan 22. Öll sýnin reyndust neikvæð og eru viðkomandi því ekki með Covid-19.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Landspítalanum, en fyrr í kvöld var greint frá því að sjúklingur á deildinni hefði smitast af veirunni.

Skimun á starfsfólki deildarinnar stendur yfir fram á nótt og lýkur í fyrramálið. Niðurstöður úr þeirri skimun munu liggja fyrir í kringum hádegið á morgun.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert