Milljarði úthlutað vegna fráveituframkvæmda

Opnað verður fyrir umsóknir í lok janúar.
Opnað verður fyrir umsóknir í lok janúar. Ljósmynd/Stjórnarráðið

Gert er ráð fyrir því í fjárlögum þessa árs að 800 milljónum króna verði varið í að styrkja sveitarfélög vegna fráveituframkvæmda, enda þörf á mikilli uppbyggingu í málaflokknum. Ráðgert er að opna fyrir umsóknir fyrir lok janúar.

Styrkirnir eru liður í sérstöku fjárfestingarátaki ríkisstjórnarinnar vegna kórónuveirunnar. Áður hafði verið ákveðið að 200 milljónum króna yrði varið til þessa máls vegna framkvæmda síðasta árs. Heildarupphæðin sem nú er til úthlutunar nemur því um einum milljarði króna, að því er segir í tilkynningu.

Skilyrði er að fráveituframkvæmdin sé áfangi í heildarlausn á fráveitumálum sveitarfélags í samræmi við áætlun sem hlotið hefur samþykki umhverfis- og auðlindaráðuneytisins. Jafnframt er skilyrði að kostnaður við styrkhæfa fráveituframkvæmd hafi fallið til eftir 1. janúar 2020.

Styrkhæfar fráveituframkvæmdir eru framkvæmdir við safnkerfi fráveitna, hreinsivirki, dælustöðvar og útrásir. Einnig framkvæmdir við hreinsun ofanvatns, svo sem til að draga úr mengun af völdum örplasts en rannsóknir hafa sýnt að megnið af örplastsmengun berst til sjávar með ofanvatni, samkvæmt tilkynningunni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert