Sóttkví aflétt af hjartadeild spítalans

Landspítalinn við Hringbraut.
Landspítalinn við Hringbraut. mbl.is/Ómar Óskarsson

Sóttkví hefur verið aflétt af hjartadeild Landspítalans. Engin kórónuveirusmit greindust hjá sjúklingum eða starfsfólki. Um 200 starfsmenn þurftu að fara í sýnatöku eftir að Covid-19 smit greindist hjá sjúklingi deildarinnar í gær. 

Niðurstöður úr sýnatöku hjá öllum sjúklingum og meirihluta starfsfólks hjartadeildar liggja nú fyrir og eru allar neikvæðar. Af því tilefni hefur farsóttanefnd Landspítalans ákveðið að aflétta sóttkví af deildinni og starfsfólki hennar. Hjartadeild tekur nú við innlögnum á nýjan leik og starfsemin þar verður með eðlilegum hætti hér með. 

Jákvæð niðurstaða um smit kom upp á hjartadeild í gær, þriðjudaginn 12. janúar, við hefðbundna öryggisskimun sjúklings fyrir útskrift. Umfangsmikið viðbragð fylgdi í kjölfarið.

200 starfsmenn skimaðir

„Skjótt viðbragð Landspítala og viðamiklar öryggisráðstafanir til að vernda sjúklinga og starfsfólk hafa nú leitt af sér þessa niðurstöðu. Málið var leitt til lykta á innan við sólarhring af vel þjálfuðu starfsfólki og vísindamönnum Landspítala. Um 200 skimanir hjá starfsfólki hafa verið framkvæmdar, flestar niðurstöður liggja fyrir, en niðurstöður úr öllum berast síðar í dag,“ segir í tilkynningu frá Spítalanum. 

Sjúklingar deildarinnar voru allir skimaðir í gærkvöldi. Hinn smitaði sjúklingur hafði tvisvar sýnt neikvæða svörun við veirunni áður en hann greindist í gær. 

Slíkt getur gerst vegna ýmissa ástæðna; til dæmis breytinga á sýnatöku og þróun sjúkdómsins í viðkomandi. Skimun er hins vegar framkvæmd óháð grun í öryggisskyni með stroki og er hraðunnin; svar berst jafnan innan 3-4 klukkustunda. Sjúklingar eru skimaðir með reglubundnum hætti. Viðkomandi reyndist síðan hár í mótefnamælingu við blóðprufu, sem mælir með nákvæmri rannsókn á grun um eldra smit vegna jákvæðrar niðurstöðu af skimun. Að öllum líkindum er því um eldra smit að ræða í viðkomandi sjúklingi, sem hann hefur fengið áður en hann lagðist inn á Landspítala í desember. Verið er að skoða málið nánar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert