Takmarkanirnar sem tóku gildi í dag

Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra leggur til tilslakanir sem taka gildi á …
Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra leggur til tilslakanir sem taka gildi á morgun. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Í dag tekur ný reglugerð heilbrigðisráðherra um fjöldatakmarkanir gildi. Ber þar hæst að samkomutakmörk verða rýmkuð í 20 manns, heilsu- og líkamsræktarstöðvum verður heimilt að halda skipulagða hóptíma með ströngum skilyrðum en skemmtistöðum, krám og spilasölum verður enn gert að hafa lokað.

Heilbrigðisstofnanir, hjúkrunarheimili og „aðrar sambærilegar stofnanir“ eru almennt undanþegnar ákvæðum reglugerðarinnar en skulu setja sér reglur um starfsemi sína. 

Reglugerðin gildir til og með 17. febrúar 2021, tveggja metra reglunni verður viðhaldið með ákveðnum undantekningum en börn fædd 2005 og síðar verða undanþegin henni.

Skemmtistaðir, krár, spilasalir verður áfram lokað en íþróttaæfingar barna og fullorðinna með eða án snertingar, í íþróttum innan sem utan ÍSÍ verða heimilar að ákveðnum skilyrðum uppfylltum. Helstu breytingarnar eru eftirfarandi:

  • Almennar fjöldatakmarkanir miðast við 20 manns.
  • Skemmtistaðir, krár, spilasalir og spilakassar áfram lokað.
  • Veitingastaðir: 20 manna takmörk og áfram óheimilt að hleypa nýjum viðskiptavinum inn eftir 21 og óheimilt að hafa opið lengur en til kl. 22.
  • Verslanir: Reglur verða óbreyttar frá því sem nú er.
  • Heilsu- og líkamsræktarstöðvar: Starfsemi verður heimil með ströngum skilyrðum. Fjöldi gesta má að hámarki vera helmingur þess sem kveðið er á um í starfsleyfi, eða helmingur þess sem búningsaðstaða gerir ráð fyrir ef gestafjölda er ekki getið í starfsleyfi. Einungis er leyfilegt að halda skipulagða hóptíma þar sem hámarksfjöldi í hverjum hópi eru 20 manns og gestir í hvern tíma skráðir. Búningsklefar skulu vera lokaðir. Börn fædd 2005 og síðar eru ekki talin með í gestafjölda. Sóttvarnalæknir mun setja fram ítarlegar leiðbeiningar um sóttvarnir á heilsu- og líkamsræktarstöðvum.
  • Íþróttaæfingar: Íþróttaæfingar barna og fullorðinna verða heimilar með og án snertingar innan- og utandyra. Ekki mega vera fleiri en 50 manns í rými. 
  • Íþróttakeppnir: Íþróttakeppnir barna og fullorðinna verða heimilar en án áhorfenda.
  • Skíðasvæði: Skíðasvæðum verður heimilt að hafa opið með takmörkunum samkvæmt reglu 4 í útgefnum reglum skíðasvæðanna í landinu. Í skíðalyftum skal tryggt að þeir sem eru einir á ferð þurfi ekki að deila lyftustól með öðrum, halda skal tveggja metra nálægðarmörk og sömu reglur gilda um grímunotkun og annars staðar.
  • Sviðslistir, bíósýningar og aðrir menningarviðburðir: Á sviði mega vera allt að 50 manns á æfingum og sýningum. Andlitsgrímur skulu notaðar eins og kostur er og tveggja metra nálægðartakmörkun virt eftir föngum. Sitjandi gestir í sal mega vera allt að 100 fullorðnir og 100 börn fædd 2005 og síðar. Gestir skulu sitja í sætum sem skráð eru á nafn og fullorðnir eiga að bera grímu.
  • Útfarir: Í útförum verður heimilt að hafa 100 manns viðstadda og teljast börn fædd árið 2005 eða síðar ekki með í þeim fjölda. Skylt verður að bera grímur. Fjöldi gesta í erfidrykkjum verður 20 manns í samræmi við almennar fjöldatakmarkanir.

Nánar er fjallað um takmarkanirnar á vef Stjórnarráðsins.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert