Alls bárust 15 umsóknir um starf orkumálastjóra, en umsóknarfrestur rann út þann 12. janúar 2021. Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra, skipar í stöðuna frá og með 1. maí 2021.
Meðal umsækjenda eru Björn Óli Hauksson, fyrrverandi forstjóri Isavia, Guðmundur Þóroddsson, fyrrverandi forstjóri Orkuveitu Reykjavíkur, og Óli Grétar Blöndal Sveinsson, framkvæmdastjóri hjá Landsvirkjun.
Ráðherra hefur skipað nefnd til að meta hæfni umsækjenda og skila greinargerð um þá. Nefndina skipa: Kristín Haraldsdóttir, lektor og formaður nefndar, Birgir Jónsson rekstrarhagfræðingur og Ingvi Már Pálsson skrifstofustjóri.
Umsækjendur eru: