Harmar atvikið í Borgarholtsskóla

Frá vettvangi í gær.
Frá vettvangi í gær. mbl.is/Kristinn Magnússon

Samband íslenskra framhaldsskólanema, SÍF, harmar atvikið sem átti sér stað í Borgarholtsskóla í gær.

„Mikilvægt er að nemendum finnist þeir öruggir í þeim skólum sem þeir stunda nám við en atvik sem þetta getur dregið verulega úr þeirri öryggiskennd. Mikilvægt er að nemendur fái alla þá áfallahjálp sem þeir þurfa og stuðning við að halda áfram námi,“ segir í yfirlýsingu vegna árásarinnar.

mbl.is/Kristinn Magnússon

SÍF mætir á fund í dag með stjórnendum Borgarholtsskóla til að fara yfir stöðuna. „SÍF vonar innilega að þeir nemendur sem særðir eru nái sér að fullu, sem og aðrir nemendur sem atvikið hafði áhrif á,“ segir í yfirlýsingunni.

Þrír voru í haldi lögreglunnar í morgun vegna árásarinnar. Þeir sem voru fluttir á slysadeild í gær hafa allir verið útskrifaðir.  

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert