Óvissa með alþjóðaskákmótið

Ramesh Praggnanandhaa frá Indlandi tefldi á mótinu 2018.
Ramesh Praggnanandhaa frá Indlandi tefldi á mótinu 2018. mbl.is/Ómar Óskarsson

Óvissa er uppi um hvort Reykjavíkurskákmótið geti farið fram í Hörpu í sumar eins og áformað var. Vegna heimsfaraldurs kórónuveirunnar gæti þurft að fresta mótinu. Að þessu sinni verður Evrópukeppni einstaklinga í skák hluti af Reykjavíkurskákmótinu.

Samkvæmt áætlun átti mótið að fara fram dagana 22. maí til 2. júní í sumar. „Annaðhvort höldum við okkur við þessar dagsetningar eða frestum mótinu fram á haust. Ég er einmitt að skrifa Evrópuskáksambandinu bréf þar sem farið er yfir stöðuna og leitað eftir þeirra sjónarmiðum,“ segir Gunnar Björnsson, forseti Skáksambandsins.

Í Morgunblaðinu í dag segir Gunnar að ekki verði hægt að bíða lengur en fram í lok febrúar eða byrjun mars með að taka ákvörðun um tímasetningu mótsins.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert