Gagnrýna að pilturinn sæti einangrun

Lögreglu- og sjúkrabílar við Borgarholtsskóla.
Lögreglu- og sjúkrabílar við Borgarholtsskóla. mbl.is/Kristinn Magnússon

Afstaða, félag fanga á Íslandi, segir það ekki þjóna rannsóknarhagsmunum að einn af þremur piltum sem voru handteknir vegna árásarinnar í Borgarholtsskóla sæti einangrun. Félagið segir ofbeldi innan framhaldsskóla aldrei eiga að líðast frekar en annars staðar. Það hefur engu að síður áhyggjur af því að ungt fólk sé sett í gæsluvarðhald og einangrun á grundvelli rannsóknarhagsmuna.

„Fyrir þá sem ekki vita þýðir það að umræddur piltur sér ekki dagsljós nema í klukkustund á hverjum degi en bíður annars örlaga sinna í þröngum klefa hina 23 klukkutímana á sólarhring,“ segir í tilkynningu frá félaginu.

„Oft hefur Afstaða fjallað um neikvæðar afleiðingar þess að einangrun hefur á andlegt líf þeirra sem þurfa að þola en eðlilega eru þær enn verri þegar um er að ræða ungt og óharðnað fólk.“

Lögreglumenn á vettvangi í Borgarholtsskóla.
Lögreglumenn á vettvangi í Borgarholtsskóla. mbl.is/Kristinn Magnússon

Tilkynningin í heild sinni:

„Ofbeldi innan framhaldsskóla á aldrei að líðast, frekar en annars staðar í samfélaginu. Engu að síður er hér að ræða um ungt fólk og hefur Afstaða af því áhyggjur að það sé sett í gæsluvarðhald og einangrun.

Lögregla hefur lítið gefið út annað en að hún hafi sett fram kröfu um að þrjú ungmenni ættu að sæta einangrun á grundvelli rannsóknarhagsmuna. Það þýðir að lögregla óttast að umrædd ungmenni muni torvelda rannsókn málsins. Héraðsdómur Reykjavíkur hafnaði tveimur kröfum en úrskurðaði pilt í einangrun í viku.

Fyrir þá sem ekki vita þýðir það að umræddur piltur sér ekki dagsljós nema í klukkustund á hverjum degi en bíður annars örlaga sinna í þröngum klefa hina 23 klukkutímana á sólarhring.

Oft hefur Afstaða fjallað um neikvæðar afleiðingar þess að einangrun hefur á andlegt líf þeirra sem þurfa að þola en eðlilega eru þær enn verri þegar um er að ræða ungt og óharðnað fólk.

Afstaða sér ekki að það þjóni rannsóknarhagsmunum að einn af þremur piltum sitji í einangrun en fer einnig fram á það við lögreglu að hraða rannsókn málsins þannig að hægt sé að afstýra frekari neikvæðum áhrifum einangrunarinnar á umrætt ungmenni.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert